Fyrstu 10 árin var Sigurplast til húsa að Lækjarteig og síðar Dugguvogi í Reykjavík. Sigurplast keypti Dósagerðina 1987 og K-plast 1990 .
Sigurplast var rekið sem sjálfstætt fyrirtæki þar til 2003 er það sameinaðist Plastprent. Þann 1 mars 2007 var félagið selt. Síðan var það aftur selt þann 1 október 2010 og þann 1 apríl 2012 tóku núverandi aðilar við rekstrinum . Megináhersla félagins er að þjónusta fyrirtæki með umbúðir og vörur.
Í dag er Sigurplast í 2300 m2 húsnæði þar sem framleiðsla og lager eru til húsa. Félagið hefur yfir að ráða 15 hágæða plastframleiðsluvélum auk 2 prentvéla.
Hjá Sigurplasti starfa 10 starfsmenn með mikla reynslu í framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini á sviði umbúða.
Árið sem Sigurplast var stofnað.
Hjá okkur starfar á annan tug starfsmanna með yfir 30 ára reynslu og þekkingu.
Sigurplast samanstendur af 30 starfsmönnum.